09.05.2009 10:38:10 / anitaveigars

ég veit ég veit

ég er svakalega lélegur bloggari, og held ég geti bara ekki lofað að reyna bæta það einu sinni, sorry....

hér er yfirleitt allt bara við það sama, svona venjulegt daglegt líf eins og hjá ykkur öllum

maría stækkar eins og enginn sé morgundagurinn, hún er löngu byrjuð að velta sér á magan en liggur svo föst þannig, henni til mikils ama hehe

við skírðum hana um daginn, þannig hún er komin í kaþólska trú blessunin, ívan var nú ekki ánægður með það þegar eg sagði honum að hún væri ekki í eins trú og við, hann vill að hún breyti þegar hun er orðin stór, og er einmitt alveg viss um að hún vilji gera það, til að verða eins og hann og mamma :)

hann er sjálfur alltaf að stækka, og það þá ekkert smá, ég bíð bara eftir að hann verði orðinn jafn stór og ég, held það sé sko ekkert langt í það, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og maður vaknar bara einn daginn og allt orðið svo breytt

ég er orðin rosa spennt að koma heim i sumar, það er samt margt sem er svo flókið við að koma, flugið og allt það, og bílleysi og allt það og bla bla bla, ég bíð enn og vona að plúsferðir slengji nokkrum beinum flugum á í sumar svo við þurfum ekki að koma löngu leiðina, sem kostar hönd og fót, Rob kemur líklega ekki með okkur, en það er séns að hann komi seinustu vikuna, hann er svo upptekinn í vinnuni að hann hefur varla tíma til að snúa sér við, en ef allt gengur eins og planað þá eigum við eftir að verða svo rík að við getum bara keypt okkar eigin flugvél hahaha þannig ég er að reyna að vera þolinmóð, en það gengur svona upp og ofan

jæja jæja eg er ekkert voðalega málglöð í augnablikinu, ef þið viljið vita eitthvað þá bara spurja 

love love :)

» 24 hafa sagt sína skoðun

11.04.2009 09:39:53 / anitaveigars

sól og sumar

hér er sól og sumar og skordýrin ráða ríkjum enn einu sinni, kramdar köngulær í hverju horni og svona næs

ívan er lasin greyið, hann er ælandi og með hita og liggur bara eins og sleginn uppí rúmi allan daginn, hann á líklegast ekki aftur eftir að segjast LANGA að vera lasinn til að sleppa því að fara í skólann stundum, því mér sýnist hann ekkert fíla þetta of vel neitt, fyrir utan að hann er dekraður út í eitt, hann sagði að þaðværi eitt gott við að vera veikur, hann fengi allt sem hann vildi hahaha

við erum loksins búin að ákveða dag fyrir skírnina, þó fyrr hefði verið, en hún verður skírð 3 maí, þá orðin meira en 4 mánaða, og hun verður kaþólsk eins og pabbi sinn, hmmmm Rob er reyndar ekkert trúaður, og ekki ég neitt sérstaklega heldur, og ég spurði hvort við ættum ekki bara að sleppa þessu, en honum finnst alveg glatað að skíra ekki barnið, mér finnst það líka pínu súrt, en mér finnst við samt vera að "óvirða" pínu kirkjuna með því að vera skíra og vera svona ótrúuð sjálf, en hvað um það, ástæðan fyrir að hún verður að vera kaþólsk er, útaf eina kirkjan sem sinnir svona fólki eins og mér og örugglega þér er í dublin, þetta eru bara eintómir kaþólikkar hérna

dæmi um að vera kaþólskur, dí man, við fórum út að borða í gær, það var einn veitingastaður opinn, og fyrir ofan hann er hótel, en allavega við pöntuðum mat og hvítvínsglas og bjór, eftir forréttinn þegar við erum einmitt líka búin með vínið og bjórinn þá kemur þjónninn og sagðist hafa haldið að við værum gestir á hótelinu og þess vegna selt okkur áfengi, hann gæti ekki selt okkur meira því það eru lög í landinu að það má ekki selja áfengi á þessum degi, KAÞÓLIKKAR!! 
Við sátum mjög súr á svipinn og ÞYRST og horfðum á hótelgestina sötra sitt vín og bjór OJ hvað þetta var pirrandi, plús það að það má ekki spila TÓNLIST á þessum degi heldur, ENGIN tónlist á opinberum stöðum í gær 

klikkað maður :) og þetta er ég að fara gera dóttur minni hmmm

jæja ég er svöng bæbæ :)

» 18 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 10:06:18 / anitaveigars

......

það er eitthvað lítið um fréttir i augnablikinu, en ég setti inn nokkrar nýjar myndir í nýtt Mars albúm

Það eru allir hressir, Rob vinnur og vinnur, ívan duglegur i skólanum, getið séð myndir af verkefni sem hann gerði eina helgina fyrir skólann í nýju myndunum, rosa flot:d María er alltaf að stækka og vex óðum uppúr fötunum sínum, ég má kaupa nýja náttgalla á 2ja vikna fresti haha og ég er bara alltaf ein

Ég er alltaf að skoða flug, en það er enþá ekkert beint flug í boði, ég tékkaði hvað myndi kosta að fljúga til london og svo þaðan til ísl fyrir okkur öll og önnur leiðin er ekki nema 130 þúsund takk fyrir, ég krossa bara fingur og vona að það verði beint flug í boði í sumar, annars verður lítið úr íslandsferð:s

Jæja ég verð að fara sinna ungfrúnni, hún er byrjuð að væla

Amma ef þú lest þetta, sem er geri passlega ráð fyrir þá langar mig bara að segja ÉG ELSKA ÞIG og hlakka til að hitta þig vonandi sem fyrst 

Love love:d

» 23 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 16:55:05 / anitaveigars

Jæja pæja

guð hvað eg er ekki að nenna þessu

er buin að reyna koma herna inn í nokkra daga en hef bara ekki haft nokkra löngun, er ekkert buin að vera í neinu "um mig" stuði undanfarið

en hvað um það, þvagprufan kom jákvæð út, fyrir viku!! sorry að ég setti það ekki inn, svona fyrir þá sem vilja vita svona lagað, eins og amma tildæmis :) 

en já, maður hefði átt að fá stærra taugaáfall yfir þessu öllu saman, enda ef ég á eftir að þurfa að fara a sjúkrahusið hérna aftur, þá ætla eg sko að hella úr könnuni, það er bókað mál

annars er hollustan alveg að fara með mig núna, ég las þarna bókina sem ég minntist á um daginn, þykkasta bók sem eg hef lesið og sú allra skemmtilegasta, allt um hvað nútíma matur gerir fyrir okkur, og ég verð að segja að þetta er skuggalega ógeðslegt, hvað leynist í mat í dag, og hvað við ættum gjörsamlega að hætta að borða, og það er nánast allt nema grænmeti og ávextir takk fyrir, en vá bókin var 400 bls og ég hef engan tíma til að fara nánar út í það

nema hvað, ég kaupti mér djús vél og smoothe vél og verslaði heilan haug af grænmeti og ávöxtum og er byrjuð að drekka þessa líku gómætu drykki, stútfulla af öllum vítamínum í heimi og bestu næringu sem finnst á þessari jörð

ef þið viljið skoða smá hvað eg er að brasa þá getiði skoðað þessa síðu  www.juicemaster.com 

þessi kall er bara snilld, og ef þið viljið fá sannleikann um mat í dag, þá verðiði að lesa bókina Slim for life eftir Jason Vale

ekki misskilja mig, ég er ekki í MEGRUN og þessi bók er ekki um megrun, þó það se það fyrsta sem ykkur dettur í hug, hún er meira um að ahfjúpa skyndibitakeðjur og allan ógeðismat, og útskýrir mjög nákvæmlega hvað, hver týpa af mat gerir fyrir okkur, allt um hversu skaðlegt draslið sem við erum að éta er, og ég sver það, ég fékk nánast ÓGEÐ á helmingnum af því sem ég elskaði að éta, en vissi ekki betur en það væri hollt, en allavega, bólin var það góð að ég las hana á nokkrum dögum, og ég er ekki lestrartýpa, þannig það ætti að segja ykkur eitthvað hahaha

en já, bið að heilsa í bili

» 17 hafa sagt sína skoðun

03.03.2009 19:10:15 / anitaveigars

3 mars

jæja ætli það sé ekki best að henda smá línum hérna inn

það  sem brennur heitast á mér í augnablikinu er að eftir sjúkrahússöguna rosalegu þarna um daginn þá var mér sagt að hringja eftir viku til að fá niðurstöður úr þvagprufunni sem var tekin, ég gerði það auðvita og fékk þau svör frá lækninum að það væri akkurat ekkert að þvagi né barni, ég var auðvita mjög glöð og ánægð að þetta væri búið, en svo fæ ég hringinu í dag, einhverjum mörgum mörgum vikum seinna frá lækninum mínum, hann segir mér að sjúkrahusið hafi haft samband við hann í dag því þeir vilja endurtaka þvagsýnið, því þeir segja að það sé ekki alveg hreint!!!!

ÞEIR SÖGÐU MÉR AÐ ÞAÐ VÆRI HREINT FYRIR NOKKRUM VIKUM, JÁ ÉG ÖSKRA 

eg sver það mig langar að geðbilast, hvað er málið með þetta, hvernig er hægt að segja að það sé ekkert að og svo mörgum vikum seinna að það þurfi að tékka betur á þessu, það segir mér auðvita að ÞAÐ VAR GREINILEGA EITTHVAÐ Í PISSINU 

JESÚS hvernig er hægt að vera svona snarheimskur, eftir að vera búin að fara alla læknis háskóla leiðina

nenniði að segja mér það??

já annars eru allir voða hressir hérna, ég kaupti mér bók um daginn, kem svo heim með þessa 400 bls bók og uppgötva að auðvita er hún á ensku, ég las pínu úr henni í búðinni sko, og það var auðvita á ensku, en ég gerði mér greiniega ekki alveg grein fyrir alvarleikanum fyrr en ég var komin heim, ég bara OMG en svo jafnaði ég mig og er búin að lesa svaka mikið og hef skilið allt hingað til nema eitt eða tvö orð, en það var aðalega ekki vandamálið, heldur að ég er mikið lengur að lesa á ensku, mig langaði að vera voða fljót með þessa, og ég held líka að þar sem ég er búin að vera hérna svo lengi og allt er á ensku og þarf að tala þetta allan daginn þá fannst mér í eitt augnablik í búðinni að þetta væri eðlilegt, ég hugsaði ekki einu sinni, hei best að reyna redda þessari á íslensku, er einhver að fatta þetta rugl hjá mér?
á fimmtudaginn ætla ég að halda upp á að hafa fengið að lifa enn sem komið er í 29 ár, það verður sko veisla, heitir og kaldir réttir og kökur og dásamleg heit, ég nefninlega uppgötvaði þennan snilldar hugsnunar hátt um daginn, þegar eg var að fá mígandi drullu yfir að verða 29 a þessu ári, þannig í staðin fyrir að verða beinlínis þunglynd á fimmtudaginn þá verð ég í essinu mínu, rosa kát yfir öllum þessum árum veiiii :)

jæja eg verð víst að fara sinna mömmu hlutverkinu, mér er stjórnað allan daginn, og þakka ég bara fyrir ef eg kemst í tölvuna óslitið í 30 mínutur 

love...

nokkrar myndir í feb alb


» 23 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 21:39:20 / anitaveigars

....................

Já Ásdís dagur elskenda er víst löngu búinn, og kominn tími á nýtt blogg

Ég hef ekkert meira að segja núna frekar en vanalega, en ég vaknaði í gær með rosa hausverk og hugsaði "djíí i have some headache"  svo nokkrum sek síðar hugsaði ég "afhverju er ég að hugsa á ensku" áðan þá var ég að taka úr þurrkaranum og allur helv þvotturinn var litaður, ég hugsaði " This is why we dont put colors and whitees together" hugsaði svo AFHVERJU ER ÉG ALLTAF AÐ HUGSA Á ENSKU díses, ívan kom heim áðan og sagði "Mamma....ég var á þarna....playground og rak löppina í eitt tækið og meiði mig geðveikt hahahaha ég spurði, HA hvar varstu? þá segir hann....æi playground, æi ég man ekki íslenska orðið!!

Viljiði pæla, maður er orðin pínu skrítinn á að vera hérna, ég er alltaf að lenda í því að ég man ekki íslenska orðið og hugsa MJÖG oft á ensku, eins með ívan

En Rob er búinn að vera hérna í 5 eða 6 ár og hann hugsar alfarið á ensku, þrátt fyrir að hafa búið í þýskalandi í 30 ár, spes.... :)

jæja drottningin kallar, og ég verð að fara, ég reyni að finna tíma brátt til að blogga meira

Far Vel :)

» 19 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 14:40:07 / anitaveigars

Dagur elskenda

Hér er allt tekið voða alvarlega og er Valentínusardagurinn engin untantekning, búðir fullar af hjartalöguðum gjöfum, dagblöðin full af auglýsingum fyrir elskendur, og allir að missa sig

ég missi svo sem ekki þvag yfir þessu, en rob er einn af þeim sem finnst þetta dagur til að halda uppá, í fyrra gaf hann mér nýjan gemsa í gjöf en ég gaf honum ekki neitt, núna er ég nú búin að kaupa eitthvað smotterí handa honum og ætla að gefa honum það í kvöld áður en við borðum, hann ætlar að elda eitthvað voðalegt handa okkur  því veitingastaðirnir eru allir kjaftfullir og bíð ég spennt eftir að vita hvort ég fái pakka hahahaha ég hef a tilfinninguni að hann hafi ekki keypt neitt, útaf ég hef ekki séð að hann hafi haft neinn lausan tíma alla vikuna, en það kemur bara í ljós og mér væri alveg sama þó eg fengi ekki neitt, því það er þá fyrsta skipti sem eg næ að gefa honum gjöf án þess að fá eitthvað til baka, fyrir utan svona smotterí sem eg hef gefið honum, en hann er mjög virkur í að kaupa allaf dýrar og flottar gjafir handa mér meðan eg kaupi alltaf eitthvað drasl handa honum hehehe en það er víst hugurinn sem gildir :)

María er farin að brosa og gretta sig loksins, en hun er búin að vera eitthvað pirruð undanfarið, held hun sé búin að vera með í maganum, og það akkurat þegar ég hætti að borða nammi, held hun vilji að ég hámi í mig ógeði, því hun var mikið betri þá

Ívan er alltaf að stækka sjálfur og held ég stundum að það búi ekki 8 ára strákur þarna inni heldur 14 ára unglingur, ég sé stundum alveg unglingaveikina streyma út, en vá María ætlar ekki að sofa í vagninum í dag nema ég keyri hana stanslaust, þannig ég þarf að þjóta, ég er búin að rugga henni 4 sinnum bara a meðan eg skrifaði þetta stutta blogg og þolinmæðin á þrotum

sjáumst fljótlega Love Love

» 18 hafa sagt sína skoðun

06.02.2009 17:51:00 / anitaveigars

&%$&$&

já há, við erum sem sagt búin að bíða í meira en einn og hálfan mánuð eftir að fá pps numerið hennar maríu, það er svona eins og kennitala heima, við þurfum þetta til að geta sótt um barnabætur og svona dót og svo er þetta líka nauðsynlegt uppa margt annað, Rob hringdi í dag til að ath hvað málið væri eiginlega, og fékk þau svör að það væri ekkert í kerfinu og pappírarnir hefðu líklega bara glatast, þannig við þurfum að fara eftir helgi og skrá barnið uppá nýtt, hvað finnst ykkur um þetta? mér finnst þetta bara enn eitt týbíska dæmið um þetta blessaða land OMG EG GÆTI GRENJAÐ

en svo eg tjái mig um meiri fáránleg heit, þá verð ég að segja ykkur hvernig það gengur fyrir sig að fara til tannlæknis hérna

maður á kannski tíma kl 13, okei allt í góðu með það, maður bíður kannski í 40 mín eftir að fá  að komast inn, þar er ath hvað þarf að gera, ef það þarf að deyfa eða taka mynd þá er það gert og svo er maður sendur aftur fram í setustofu á meðan tannlæknirinn ath hvað þarf að gera fyrir næsta, og svo þarnæsta og svo framvegis, það getur tekið aðrar 40 mín, svo er röðin komin að þér aftur, þarna er maður löngu orðin vel deyfður, og búinn að vera hja tannsa í rúman klukkutíma, enn með bilaða tönn, þá a eftir að gera við og það tekur einhvern tíma líka, mig minnir að seinasti tími sem eg fór í stóð um 2 klukkutíma, ég tek alveg ut fyrir að þurfa að fara til tannsa hérna, manni líður svona eins og fisk á færibandi, en þetta er mjög spes aðferð finnst mér, mér fannst tildæmis gaman að fara til tannlæknisins míns heima, ég sofnaði stundum og eg sver það, ég slappaði aldrei eins mikið af og akkurat þá

eg er að spá i hvað eg a að hafa i matinn i kvöld, mér dettur ekkert í hug, það er alltaf það sama í matinn hérna, útaf það er ekkert i boði nema kjúlli, hakk, fiskur, og svo einhver skrítinn írskur matur sem eg veit ekkert hvað er, ne hvernig a að elda, sökum þessa er mjög oft take away á þessu heimili, dominos, mc donalds og kínverskur eru málið en eg vildi óska að ég nennti að elda oftar, það er bara ekki svo gaman að vera alltaf að elda það sama, og ef mér dettur nu i hug að gera eitthvað sniðugt þá borðar það enginn nema ég, Rob er tildæmis akkurat öfugt við mig hvað varðar helling af mat, og étur ekkert helminginn af því sem eg fíla, og ef eg reyni að koma honum i hollustuna með mér þá gengur það kannski i 2 daga, eftir það þá eru þeir farnir að nauða um pizzu eða hamborga, strákarnir standa sem sagt alveg saman á heimilinu, eg vona bara að maría verði með mér í liði þegar hun verður stór, en ég held reyndar að það se alveg bókað að hun verði það, því Rob er strax farin að ákveða hvernig hun verði alin upp á unglingsárunum og má hun td alls ekki eiga kærasta, guð hjálpi fyrsta kærastanum segi eg nu bara, en ja það er svona sitt lítið af hvoru, kannski er hann bara að grínast, en ég held samt að ég verði pinu skilningsríkari en hann, en eg held auðvita líka alltaf að ég geri allt betur á heimilinu en hann, nema hann eldar betri mat en eg, en það er bara útaf hann eldar svo óhollt, td notar salt og smör og allskonar ógeð til að bragðbæta matinn, og er reyndar búinn að viðurkenna að honum finnist maturinn minn bragðlaus með öllu oft á tíðum

jæja eg ætla að fara i búð og græja eitthvað óspennó fyrir bóndann áður en hann kemur heim úr vinnuni

» 15 hafa sagt sína skoðun

05.02.2009 10:43:16 / anitaveigars

....

ég bloggaði um daginn en það vistaðist ekki og varð ég því mjög reið og nennti ekki að blogga aftur, eg er sem sagt alveg að reyna mitt besta:)

í gær var merkilegur dagur, við búin að vera hérna í ár og við Rob trúlofuð í ár, verð að viðurkenna að þegar hann dró upp þennan svakalega hring fyrir ári síðan þá hélt ég að hann væri geðveikur og spurði sjálfa mig hvort ég ætti kannski bara að hoppa upp í vél og fara heim aftur, nei djók hahaha en mér brá heldur betur í brún samt sem áður, en allavega núna ári seinna leikur allt í lyndi og allir voða glaðir :)

í gær ætluðum við einmitt að fara út að borða saman í hádeginu svona til að fagna smá, en fyrst þurfti eg að fara í 6 vikna skoðun með maríu, það var klukkan 12, þannig ég svelti mig algjörlega fyrir hádegis lunch-ið því tilhlökkunin var svo mikil, já spáðiði í því, greinilegt að maður hefur ekki mikið fyrir stafni :)

en allavega eg fer með barnið, tek það fram að ég viktaði mig með hana herna heima fyrir nokkrum dögum og þá var hun orðin 5 kíló, 1 kg þyngri en í síðustu skoðun, jæja þetta byrjar þannig að eins og vanalega þá mátti ég bíða eftir lækninum til klukkan 1, alltaf sama sagan, svo förum við inn og ég sá það strax að hann var mjög heimskur, sorry en þetta var bara mín tilfinning, hann byrjaði svo að mæla og svona en svo þegar hann viktar hana þá kann hann ekki einu sinni að kveikja á viktinni, en viktin náði aldrei að verða stöðug og hun mældist bara 4 kg, mér til mikills áfalls og sagði ég honum að ég væri nýbúin að vikta hana um 5 kg, og hann tjáði mér það að hans vikt lygi ekki OKEI SÆLL ég var í algjörum mínus, en svo ræddum við sma um hversu gul hún er enn þá, og hann ákvað að það væri best að ég "takið eftir" KÍKKAÐI upp á sjúkrahús í SMÁ bóðprufu með barnið, ég var orðin verulega svelt þarna og klukkan var 2, en allavega ég hugsaði með mér að þetta gæti ekki tekið rosa langan tíma og brunaði upp á sjúkrahús, þau tóku strax á móti mér þarna uppfrá þannig það sagði mér einning að þetta myndi ekki taka langan tíma, jæja þá byrjar fjörið, takið eftir að klukkan var um 2, það byrjar þannig að ég þarf að skrá barnið inná sjúkrahúsið, ég hitti konu sem spurði mig millján spurninga, til að setja inn í tölvuna hja sér, meðalannars hvers þjóðar barnið væri, ég sagði henni það "islenskt-þýskt-ítalskt" og hun bara ÆI eigum við ekki bara að hafa hana írska útaf hún fæddist líka hérna, ég góndi bara á konuna og sagði THE KID IS DEFINATLEY NOT IRISH 8| og hún í rosa vandræðum því kerfið bauð ekki uppá svona blönduð börn, þannig ég segi henni að tikka bara í islenskt "hún hafði bara val um ákveðið, hún gat ekki skrifað sjálf í eiðurnar" hún leitaði af því en sökum gamals kerfis þá fann hun ekki ísland, eða svoleiðis útskýrði hun það fyrir mér

það er allt svona hérna, illa úrelt og helmingurinn af írum nautheimskir

en allavega þá sagði ég henni að hun hliti þá að hafa valkostinn ANNAÐ, og hún tékkaði á því, og jú það var þarna en þá fannst henni ferlegt að enginn vissi hvers þjóðar barnið væri, ég sagði bara okei fínt, en írsk er hún ekki, enda bara fáránlegt að reyna troða því á barnið þar sem við erum hvorugt héðan ohhhhh

jæja ég fer svo aftur upp þar sem herlegheitin byrja, ég fór í 2 önnur svona skýrslu viðtöl, með millján spurningum, hjá bæði lækninum og hjúkkuni og svo var tekið blóð úr báðum höndunum á henni útaf þau toku of lítið úr fyrst, VITANDI að þau þyrftu að hálf fylla 2 hylki, svo þurftu þau að setja eh pissupokka á hana 2var sinnum, til þess að setja það í rannsókn, og ég þurfi að bíða á sjúkrahúsinu eftir niðurstöðunum úr blóðinu, en þau viktuðu hana aftur fyrir mig og hún var aðeins meira en 5 kíló hahaha eg get ekki beðið eftir að segja lækninum að MÍN VIKT lýgur ekki, en hann megi kíkka betur á sína, ég allavega hoppaði gleði mína í smá stund, en hvað um það

ég labbaði út kl 18 með nákvmæmlega þær niðurstöður sem ég vissi að ég myndi fá, EKKERT AÐ BARNINU

ég hefði kannski átt að segja ykkur frá hinni sjúkrahus sögunni sem eg lenti í þegar eg var ólétt, þannig að þið mynduð fatta pirringin með þessari, en ég held ég hafi ekki nennt að skrifa hana hérna a´sinum tíma, en ég veit ekkert ömurlegra en að fara til tannlæknis, læknis eða uppá sjúkrahus hérna, maður má alveg búast við að allt þetta taki heilan dag og gera ráðstafanir samkvæmt því, og svo eru írar heimskir, enda 70% af læknum hérna ekki héðan, þetta eru allt svertingjar og pólverjar og ég veit ekki hvað og hvað

jæja púst púst, við Rob fögnuðum aldrei, heldur drusluðumst heim uppgefin á líkama og sál hehehe:lol:

6 vikna skoðunin tok sem sagt 6 klukkutíma, og mér er strax farið að kvíða fyrir næstu skoðun:^) en eg vil samt taka það fram að mér finnst auðvita hið eðlilegasta mál að fara með stelpuna í skoðun, en fyrr má nú vera tíminn sem þetta lið gefur sér, sérstaklega í ljósi þess að barnið var mikið gulara og það fannst engum neitt athugavert við það fyrir nokkrum vikum, og svo þegar allt er að koma í gott horf þá finnst þeim loksins kominn tími fyrir allsherjar tékk, en þið þyrftuð eiginlega að vera búin að bua hérna til að skilja nákvæmlega hvernig mer líður stundum, það er eins og það sé enginn með á nótunum hérna, gamaldags og stórskrítið :$

» 16 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 12:11:50 / anitaveigars

nýjar myndir

í Maríu albúmið :)

ég þoli ekki þegar ég geri lítinn staf í byrjun setningar, en ég ætla samt að halda því áfram, vildi bara tjá mig aðeins um þetta, útaf þetta er það fyrsta sem ég hugsa þegar ég er búin að skrifa eina línu hérna, okei :)

mér drulluleiðist, og hef voða fátt að segja, við María erum bara hérna heima, ég fer vanalega út í einn göngutúr á daginn, fer svo og sæki ívan í skolann og kem aftur heim, rosa stuð

ómæ ómæ




» 15 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 11:00:59 / anitaveigars

neyðarástand í landinu

Já það ríkir heldur betur neyðarástand, ég minntist á .það um daginn að það væri að snjóa hérna og það snjóar enn, öllum til mikilla ama þar sem það er ekki eitt vetrardekk að finna í landinu, það byrjaði nú á mán morguninn að Rob skutlar ívani í skólann og þegar þeir mæta þá er enginn skóli útaf snjónum, öll umferð í bænum var alveg stopp og enginn þorði fyrir sitt litla líf að hreyfa sig, en mér fannst ekki vera neinn snjór, svona miðað við hverju maður er nú vanur þannig við förum í bæinn að versla, þegar ég er svo á leiðinni heim þá var byrjað að snjóa aftur og umferðin alveg í klessu, ég var mjög pirruð á þessum aulum, og blótaði öllum hægri vinstri, svo þegar eg var að verða komin heim, ein stór brekka eftir þá sat mín föst ásamt mörgum fleiri í miðri brekkunni, sá húsið mitt næstum því og hugsaði að þetta ætlaði ég sko ekki að labba með barnið á sandölunum, ég er alltaf til fara eins og ég búi á spáni hahaha þannig ég fór niður aftur og ætlaði að taka þetta á spyrnunni, hver kannast ekki við það :) allt kom fyrir ekki og ég sat aftur föst, þarna var mér ekkert farið að litast á blikuna, fólk að koma að bílnum og segja mér bara að leggja honum því ég kæmist aldrei upp, ég hélt nú ekki, og sem betur fer þá kom nonni allt í einu útúr götunni minni því hann var að brasa eitthvað heima rétt áður en þetta allt byrjar, ég segi honum að ég verði að komast upp og hann hendist inní bílinn og segir VIÐ FÖRUM UPP hahaha hann skellir sér í bílstjórasætið og tekur í kaggann, þarna var enn fólk að reyna stoppa okkur og segja að þetta væri borin von, við kæmumst þetta ALDREI, en við íslendingarnir hlustum ekki á svona vitleysu, við kunnum þetta :) í götunni stóðu svo allir og störðu á okkur þegar nonni nauðgaði bílnum upp alla brekkuna, með viðeigandi brjálæði og látum, ég hló í bakgluggan af aulunum í brekkunni á meðan hahahaha gott að vera íslendingur stundum :)

Og enn í dag þá máttu strakrnir fara i skólann til þess eins að vera sendir heim aftur, spes ástand 8|

Hér er svolítið spes heimilisástand, en það verður oft mjög mikill misskilningur milli heimilisfólks, sérstaklega mín og Robs, eitt dæmi er að ég bað manninn um að skrifa nafnið Maríu niður á blað fyrir nokkrum mánuðum síðan, svo ég gæti sýnt mömmu hvernig það væri skrifað, hann skrifaði María Michelle, ég held ég geti hengt mig uppá það, þannig ég fer að vesenst með nafnið og við ræðum þetta nokkrum sinnum hvernig við eigum að hafa þetta útaf þessu Michelle dæmi, svo um daginn þegar við förum með hana í sprautu þá fyllir Rob út blaðið og skrifar María Michéle ÉG BARA HA það var þá aldrei skrifað Michelle, og ef þetta hefði bara verið ljóst frá upphafi þá hefði þetta aldrei verið neitt vandamál, veit ekki hvort þið fattið mig, ef ekki spurjið þá bara, en ég snýst stundum alveg í hringi hérna hahahaha


» 18 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 11:20:01 / anitaveigars

umkringd svefnpurrkum

Það er ekkert nýtt að hér er aðeins ein manneskja sem nennir a lappir á morgnanna, og það er húsmóðirin sjálf, strákarnir steinrotaðir uppi og María liggur hérna í sófanum, eldrauð í framan prumpandi eins og hun fái borgað fyrir það, já það er sko alvöru dama hér a ferð hahahaha hún er enn að stækka og er orðin jafn stór og þung og ívan var þegar hann fæddist, yfir 4 kíló og um 55 cm, það gleður mig afar mikið, því hun var eiginlega alltof brothætt þarna í byrjun, en hún er akkurat 1 mánaða í dag:d

Mig vantar alveg rosalega að komast á medullu og fá almennilega klippingu og litun, ég er búin að prófa nokkrar stofur herna og mig langar að grenja þegar eg hugsa um upplifanir mínar af þeim, fyrst langaði mig að springa úr hlátri þegar þær voru að blása á mér hárið, því aðrar eins kúnstir hef eg aldrei séð á ævinni, taktarnir sem þær eru með eru eins og einhver skrítinn dans, ég sver það!!! En núna langar mig bara að grenja, hátt og duglega, maður labbar alltaf út eins og maður sé að fara taka þátt í skrípaleikriti frá 1800 :( Þær kunna hvorki að klippa né lita

JA dæises það snjóar hérna, ég ætlaði ekki að trúa þessu þegar eg vaknaði en það snjóaði á fullu og allt bara orðið hvítt, Rob segist aldrei hafa séð annað eins en eftir að ég flutti hingað, hann segir þetta vera mér að kenna, því það hafi aldrei snjóað fyrr en nú, en þetta er allt í lagi því þetta verður farið á eftir

ég held ég ætti að fara og vekja liðið, rífa af þeim sængurnar og öskra, hvernig lýst ykkur á það:klikk:

Ásdís, kvittaðu svo, ég er farin að grenja ef þú drífur þig ekki :d

» 27 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 09:00:14 / anitaveigars

ANDVÖKU-nætur

já svona var það þá fyrir 8 árum síðan, vakna sofa vakna sofa vakna sofa ALLA nóttina, og strax orðin rosa þreytt hahaha bara rúmar 4 vikur síðan snúllan fæddist, en ég ætla samt ekki að byrja að kvarta strax, gefum þessu allavega 3 manuði áður en ég fer að grenja hahahaha hún er allavega búin að stækka og þyngjast helling, í seinustu viku þegar hjúkkan kom var hún orðin 3750 gr "var 2750gr" og 54 cm "var49cm" þannig allir voða ánægðir með það:d

Ívan er einnig búin að stækka mikið, því áður en ég átti hana þá var hann alltaf litla rassgatið hennar mömmu sinnar "já ég veit, væmið og allt það" en á einni nóttu breyttist hann úr mússí mússi, yfir í unglinginn á heimilinu, nefninlega eftir að hun fæddist þá get ég ekki lengur séð hann sem litla barnið, hann er svo svaðalega stór við hliðina á henni, en honum finnst það bara cool, því hann er sko alveg að standa sig sem stóri brói:d

En að mér, já mér, usss ég er þvílíkt að fíla mömmuhltverkið, er búin að læra ungbarna mál uppá nýtt, og mjólka eins og kú allan daginn, já það er mitt líf í dag, sem er svo sem fínt nema mér leiðist alveg svakalega inná milli, það er svo sem ekkert nýtt, þvi ég hef líklega alltaf verið svona, rosa eyrðarlaus týpa, er mikið búin að hugsa hvað ég ætti að gera af mér, það er ekkert í boði hérna back in the 60's, eins og á meðgöngunni, engin óléttuleikfimi eða neitt, og svo núna EKKERT

En ég bíð bara spennt eftir að geta farið í ferðalag með familíuna, vonandi í sumar til íslands jeiiii :d

Ég gleimdi samt að segja ykkur hvernig mér leið í fæðingunni, svona útaf margir halda og þar á meðal ég "hélt" að það sé auðveldara að fæða annað barn, þá langaði mér bara að segja ykkur að það er hreinasta vitleysa, ívan var meira en 4 KÍLÓ og það var betra að fæða hann, ég man ég hugsaði strax eftir þá fæðingu að ég gæti sko alveg gert þetta aftur, en enn í dag eftir prinsess María þá fæ ég hroll við tilhugsunina um að HUGSA um að verða ólétt aftur og þurfa að liggja á bekk nær dauða en lífi, já segi ég og skrifa takk fyrir, en samt var þessi fæðing mikið sneggri, þó hin hafi verið ansi snögg líka, ég hugsaði bara ERUÐI AÐ GRÍNAST EÐA, að það skuli vera okkur konum EÐLILEGT að ganga í gegnum svona leiki er mér óskiljanlegt 8|

í stuttu máli sagt þá sé ég fyrir mér myndina Hostel

En ég á 2 börn og mann og elska þau útaf lífinu, þott það sé farið svona með mig /%$&$#%#$%$% :d

» 16 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 19:58:29 / anitaveigars

gleðilegt nýtt ár

jæja ætli það sé ekki best að reyna punga út einhverjum orðum hérna, ég er alveg freðin þegar kemur að því að blogga, enda með eindæmum leiðinlegt blogg hérna :d

ívan byrjaði í skólanum eftir frí í dag, það var alveg kominn tími á mánudag aftur, þó það sé miðvikudagur ég veit ég veit, en mér finnst eins og það sé búið að vera laugardagur og sunnudagur í svona 3 vikur, kannski útaf ég er búin að vera inni meira og minna síðan María fæddist

María Michelle er ss nafnið á mömmu hans Rob, en hún dó fyrir nokkrum árum, hún var ítölsk þannig nafnið hennar var alltaf borið fram svona Maria Mikele, en samt skrifað michelle, en þetta er pínu flókið útaf þessu, ef við höfum seinna nafnið rétt stafsett þá mun það alltaf vera borið fram á enskann hátt, hvað finnst ykkur?? hef pælt í því að breyta því hvernig það er skrifað til að það hljómi eins og ömmu hennar, en þá er það samt enþá rangt hmmmmm skiluru mig???

En barnið er þokkalega blandað, hún er 50 % íslendingur 25% þjóðverji og 25 % ítali, geri aðrir betur hahahaha :d

það eru komnar nokkrar nýjar myndir í Januar albúm, þar ætla ég að setja allt sem verður tekið í janúar, sem segir sig nátturulega sjálft, en bara hafa það með ef þið eruð jafn steikt og ég:d

jæja ég hef ekkert meira að segja, en veit að um leið og ég vista þetta þá man ég helling, það er alltaf þannig, en svo líður svo langt þangað til ég blogga næst að það verður orðin gömul frétt þá og svoleiðis já

hafið það gott, þangað til næst :d

» 19 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 15:05:26 / anitaveigars

Endalaust stuð :)

Jæja þá eru jólin búin og nýja árið alveg að fara koma, árið sem ég verð omg 29 ára ohh ohh ekki alveg að fíla það sko

Hér eru allir svífandi um á bleiku skýi, ívan var svoleiðis ofdekraður um jólin, ég ætla ekki einu sinni að tjá mig um hvað allar gjafirnar hans kostuðu, þið mynduð örugglega fá taugaáfall, en Rob sá um alla pakkana til hans, og hann getur verið ansi ýktur þegar hann fer einn í bæinn, annað en ég fröken nísk, tími aldrei að kaupa neitt og kem alltaf tómhent heim eftir svaka verslunarleiðangur

Litli engilinn er bara alveg yndisleg, það er varla að ég viti hvernig blessað barnið grætur því hún er svo góð, held hún hafi það frá pabba sínum, hann er með eitt mesta jafnaðargeð sem finnst á manni, ég var einmitt að spá í því í gær að hann hefur aldrei þá meina ég sko ALDREI orðið pirraður útaf neinu, eða í vondu skapi síðan við komum hingað, annað en ég, sem verð fúl og pirruð útaf ekki neinu og læt það svo bara bitna óhikað á saklausum, skamm á mig..... verð að taka hann til fyrirmyndar:d

Jæja ég hefði átt að hafa meiri áhyggjur af þyngdinni a meðgöngunni, hefði átt að missa mig aðeins meira yfir þessu hmmm...... barnið er 11 daga gamalt og ég er búin að léttast um 11 kg, og á eitt kíló eftir í mína þyngd, ég sver það ég er engan vegin að ná þessu sko,  jólin búin að vera í millitíðinni og allt, en ég segi svo sem ekki að ég sé eitthvað grenjandi útaf þessu hehehe en ég fór samt í búðina og kaupti fullt af mat og ætla að vera rosa dugleg að elda alla daga svo ég geti verið með barnið á brjósti án þess að vera í yfirliðköstum daginn út og daginn inn

best að fara kikka á eplakökuna sem ég er að baka handa ívani

takk aftur fyrir kveðjurnar og sjáumst bara á nýju ári veiiii :d

» 20 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 23070
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leitarbox